1/10
Looks like no tags are added yet.
Name | Mastery | Learn | Test | Matching | Spaced |
---|
No study sessions yet.
A
Viðvarandi mynstur athyglisbrests og/eða ofvirkni-hvatvísi sem truflar virkni eða þroska, sem kemur fram sem (1) og/eða (2):
A1
Athyglisbrestur: Sex eða fleiri eftirfarandi einkenna hafa verið til staðar í a.m.k. 6 mánuði á hátt sem samsvarar ekki þroskastigi og sem hefur bein neikvæð áhrif á félagslíf og nám/vinnu:
ATH: Einkenni má ekki heimfæra einungis upp á mótþróa, þrjósku, ögrun, fjandskap eða vanskilning á leiðbeiningum.
Fyrir 17 ára og eldri þarf fimm einkenni eða fleiri.
A1: a-h
Hugar illa að smáatriðum og gerir oft fljótfærnislegar villur, t.d. við heimanám eða í vinnu.
Á erfitt með að halda athygli við verkefni eða leiki
Virðist ekki hlusta þegar talað er beint til hennar/hans.
Fylgir ekki fyrirmælum til enda og lýkur ekki við verkefni.
Á erfitt með að skipuleggja verkefni og athafnir.
Forðast viðfangsefni sem krefjast þess að viðhalda mikilli einbeitingu (t.d. heimanám og skólaverkefni)
Týnir oft hlutum sem hann/hún þarf á að halda til verkefna sinna eða annarra athafna, t.d. gleraugum, heimavinnu, lyklum, símum o.fl.
Truflast auðveldlega af utanaðkomandi áreitum (fyrir eldri ungmenni má telja með ótengdar hugsanir hér)
Er gleymin/n í athöfnum daglegs lífs
A2
Ofvirkni og hvatvísi: Sex eða fleiri eftirfarandi einkenna hafa verið til staðar í a.m.k. 6 mánuði á hátt sem samsvarar ekki þroskastigi og sem hefur bein neikvæð áhrif á félagslíf og nám/vinnu:
ATH: Einkenni má ekki heimfæra einungis á mótþróa, þrjósku, ögrun, fjandskap eða vanskilning á leiðbeiningum.
Fyrir 17 ára og eldri þarf fimm einkenni eða fleiri.
A2: a-i
Hendur og fætur á sífelldu iði eða að fikta
Fer úr sæti í skólastofu eða við aðrar aðstæður þar sem ætlast er til kyrrsetu
Hleypur um eða prílar óhóflega við aðstæður þar sem slíkt á ekki við
Á erfitt með að vera hljóð/ur við leik eða tómstundastarf
Er oft stöðugt á ferðinni eða eins og þeytispjald (ÞEYTI)
Talar óhóflega mikið (TALAR)
Grípur fram í með svari áður en spurningu er lokið (SVAR)
Á erfitt með að bíða eftir að röðin komi að honum/henni í hópvinnu eða leik (RÖÐ)
Grípur fram í eða ryðst inn í samræður eða leiki (GRÍPUR)
B
Mörg einkenni athyglisbrests eða ofvirkni voru til staðar fyrir 12 ára aldur.
C
Mörg einkenni athyglisbrests eða ofvirkni eru til staðar í tveimur eða fleiri aðstæðum (s.s. heima, í skóla, vinnu, o.s.fv)
D
Það eru skýr merki um að einkenni trufli eða minnki gæði félagslegrar, námslegrar eða atvinnutengdrar virkni.
E
Einkenni koma ekki einungis fram í geðrofslotu í geðklofa eða öðrum geðrofssjúkdómi og má ekki betur skýra með annarri geðröskun, t.d. lyndisröskun, kvíðaröskun, persónuleikaröskun o.fl.
Tilgreinið:
Samtengd birting (combined presentation): Ef skilmerki 1 og 2 eru bæði uppfyllt s.l. 6 mánuði
Predominantly inattentive presentation: Ef skilmerki 1 er uppfyllt en ekki skilmerki 2 s.l. 6 mánuði
Predominantly hyperactive/impulsive presentation: Ef skilmerki 2 er uppfyllt en ekki skilmerki 1 s.l. 6 mánuði.
Tilgreinið núverandi alvarleika:
Vægur: Fá ef einhver einkenni fram yfir þau sem til þarf og einkenni valda minniháttar skerðingu á virkni í daglegu lífi.
Miðlungs: Einkenni og skerðing á virkni á milli “vægrar” og “alvarlegrar” röskunar
Alvarleg: Mörg einkenni fram yfir það sem þarf eða fleiri einkenni sem eru sérlega alvarleg, eða einkenni valda verulegri skerðingu á virkni í daglegu lífi.