1/47
Name | Mastery | Learn | Test | Matching | Spaced | Call with Kai |
|---|
No analytics yet
Send a link to your students to track their progress
Hverjir eru söluráðarnir 4
Vara, Verð, Vettvangur, vegsauki
Hverjir eru söluráðarnir 7(4+3)?
Vara, Verð, Vettvangur, vegsauki + fólk, ferlar og áþreyfanlegt umhverfi.
Hvað er vörumerkjavitund?
Hversu margir þekkja vörumerkið þitt. Getur átt við um nafn fyrirtækisins, lógoið eða vörurnar sem vörumerkið framleiðir.
Hvernig eykur maður vörumerkjavitund?
Hægt er að auka vörumerkjavitund með því að nýta td. auglýsingar, word of mouth(orðspor), fríum prufum etc.
Af hverju skiptir vörumerkjavitund máli?
Vörur og vörumerki með háa vörumerkjavitund eru líklegri til að selja meira þar sem fólk er líklegra til þess að kaupa einhvað sem það þekkir en það sem þau þekkja ekki.
Hvað er orðspor(Word of mouth)
Þegar áhugi neytenda á vörum eða þjónustu fyrirtækisins endurspeglast í daglegum samræðum þeirra.
Af hverju skiptir orðspor máli.
Getur í raun verið ókeypis auglýsing sem varð til vegna upplifunar viðskiptavinar, venjulega sagt frá því sem var umfram væntingar.
Gallinn við orðspor.
Það getur líka verið neikvætt td. ef upplifunin var slæm og talað er illa um fyrirtækið.
Hvað er top of mind
Að vera … er að vera ofarlega í huga mögulegra viðskiptavina.
Af hverju skiptir máli að vera top of mind.
Ef fyrirtækið þitt er það fyrsta sem fólki dettur í hug er ávinningurinn nokkuð augljós, fólk byrjar ósjálfrátt að hugsa um og leita af þínum vörum þegar þau þurfa á þeim að halda.
Hvernig mælir maður top of mind?
Með því að spyrja opinna spuringa um hvað sé það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar kemur að einhverju ákveðnu.
Hvernig á ekki að mæla top of mind
Með því að vera með fyrirfram gefinn lista.
Hvað er vörumerkjatryggð (langt svar, 2 hlutar)
Tilhneygjing neytenda til að halda áfram að kaupa vörumerkið í stað þess að kaupa vörumerki samkeppnisaðila.
Viðskiptavinir telja að á bakvið ákveðið vörumerki séu meiri gæði og/eða betri þjónusta en hjá öðrum samkeppnisaðilum.
Á hverju byggir vörumerkjatryggð? En hvað skiptir ekki máli.
hún byggir á skynjun (ímynd og upplifun). Verð er ekki inni í jöfnunni.
Af hverju skipti vörumerkjatryggð máli?
Það er hagur fyrirtækisins að viðskiptavinir þess haldi tryggð og haldi áfram að kaupa hjá því.
Hvort er ódýrarra að viðhalda eða sækja nýjan viðskiptavin?
Það er töluvert ódýrarra að viðhalda gamla viðskiptavininum. Sérstaklega ef vörumerkjatryggð er há, þá lækkar kostnaðurinn.
Hvað er vörumerkjavirði?
Sú upphæð sem þu fengir fyrir að selja vörumerkið þitt.
Hvernig má skilgreina vörumerkjavirði?(1/2)
Ef þú myndir selja vörumerkið þitt eða það sameinast öðru og lógó þess og vörur eða þjónusta yrði ennþá selst þá væri upphæðin sem væri greidd til að öðlast þann rétt … .
Hvernig má skilgreina vörumerkjavirði?(2/2)
Hvað þú þyrftir að eiða til þess að framkvæma, auglýsa og kynna algjörlega nýtt vörumerki og koma því á sama stall og núvernadi vörumerkið er á.
Hvað er vörumerkjavísitala?
Afhverju viðskiptavinir eru í sumum tilfellum tilbúnir að borga meira fyrir ákveðið vörumerki frekar en að kaupa einhvað ódýrarra.
Af hverju skiptir vörumerkjavísitala máli.
Ef … er á þá eru viðskiptavinir í flestum tilvikum tilbúnir að borga meira fyrir vöruna sem eykur hagnað og/eða söluna.
Hvernig er hægt að hækka vörumerkjavísitölu?
skref: Láta viðskiptavin vita af vörumerkinu.
skref: Viðskiptavinurinn myndar sér jákvæða eða neikvæða skoðun á vörunni.
skref: undirmeðvitund viðkomandi tengir vörumerkin ómeðtvitað við ákveðið gildi, sem eykur virði þess.
Hvað er staðfærsla?
Athöfnin við að hanna virði og ýmind fyrirtækisins/vörunnar til þess að skipa sérstakan sess í huga markaðarins.
með öðrum orðum:
staðfærsla lýsir því hvernig vörumerki er frábrugðið samkeppnisaðilum sínum og hvar, eða hvernig, það situr í huga viðskiptavina, það er hvernig þau skynja vörumerkið.
Hvernig nær maður árangursríkri staðfærslu.
Árangursrík staðfærsla myndar jákvæð hugrenningartengsl sem eykur hollustu við vörumerkið og viljan til að kaupa það.
afþví: viðskiptavinir líta á það sem
öðruvísi
spennandi
hagstæðara
trúverðugara.
Hvað er markaðsstefna
Heildarátlun fyrirtækisins um hvernig það ætlar ná til væntanlegra neytenda og breyta þeim í viðskiptavini, með annaðhvort kaupum á vörum eða þjónustu.
Hvert er markmiðið með markaðsstefnu?
Að ná sjálfbæru samkeppnisforsskoti á markaðinum.
Hvers vegna skiptir markaðsstefna máli?
Ef markaðsstefnan er árangursrík þýðir það að ákveðin markmið eða mælikvörðum hefur verið náð. td. aukin sala, betri dreyfing, top of mind eða samkeppnisforskot.
Hverju skilar sjálfbært samkeppnisforskot?
Það eykur líkur á að fyrirtækis skili auknum hagnaði.
Hvað er markaðsáætlun.
Ákveðnar aðgerðir sem þú ætlar að grípa til til þess að ná innleiða markaðsstefnu þína.
Af hverju skiptir þetta máli?
góð markaðsáætlun stóreykur líkurnar á því að ná árangri í markaðsmálum auk þess að miðla upplýsingum til fólks og teyma.
Hver er munurinn á Markaðsstefnu og á markaðsáætlun?
Markaðsstefna:
Tilheyrir CMO
Styður við markmið fyrirtækisins
byggt á viðskiptastefnu fyrirtækisins
Það sem þú skilar af þér
Markaðsáætlun:
Tilheyrir markaðsstjóranum
Styður við markaðsstefnu
Inniheldur skilgreindar leiðir til að ná markmiðunum
byggt á markaðsstefnunni
hvernig þú gerir allt.
Hvað er aðgreining vörumerkis?
Vísar til þeirra þátta vöru eða þjónustu sem aðgreinir eina vöru frá annarri. Aðgreining getur verið hugræn eða átt sér stað í alvörunni.
Af hverju skiptir aðgreining vörumerkis máli?
Með því að aðgreina vörumerkið þitt frá samkeppnisaðilum má áætla að varan þín höfði til markhóps sem aðrir eru ekki að sinna
Það styrkir samkeppnisforskot þitt afþví erftitt getur reynst fyrir aðra að herma eftir þeim aðgerðum sem þú ert með í gangi.
Hefur jákvæð áhrif á hollustu við vörumerkið.
Hvað er markhópur?
Tiltekinn hópur neytenda sem er líklegastur til að vilja kaupa vöruna þína eða þjónustu. Þetta fólk ætti að sjá auglýsingarherferðirnar þínar.
Afhverju skipta markhópar máli?
Það er erfitt að ná til allra alltaf, með því að skilgreina réttan markhóp ertu að auka líkurnar á að markaðsstarf vörumerkisins sé árangursríkt.
Hvað er markaðshlutun?
Safna væntanlegum kaupendum í hópa eða hluta sem hafa sameiginlegar þarfir og eru líklegir til að bregðast eins við markaðsaðgerðum.
Í hvaða fjóra flokka má skipta markaðshlutun?
Lýðfræðilega, eftir fyrirtækjum, landfræðilega, eftir hegðun
Lýðfræðileg markaðshlutun.
Ef skipt er eftir sérstökum eiginleikum fólks, td. ungir karlmenn.
Fyrirtækja skipt markaðshlutun.
Þegar fyrirtæki nálgast annað fyrirtæki. fyrirtækin eru þá flokkuð eftir stærð, eiginleikum og þjónustu.
landfræðilegskipting
hópurinn er skipaður út frá landfræðilegri staðsetningu sinni. ísland vs spánn
Hegðunar skipting
Skipt upp eftir ákveðnum hegðunum sem einstaklingar temja sér td. próteín til þeirra sem fara oft í ræktina.
Hvað er rödd fyrirtækisins?
Á við um hvernig þú segir hlutina, ekki hvað það er sem þú segir. td. nova → hress, bold
Mikilvægt að hafa markhóp fyrirtækisins í huga þegar rödd þess er ákveðin.
Árángursmælikvarðar KPI
Mismunandi mælikvarðar á velgegni fyrirtækisins
getur verið td. sala eða heimsóknir á vefsíðu.
Afhverju skipta KPI máli?
Fyrirtæki geta með ákveðni vissu séð hversu vel ákveðin markaðsaðgerð gengur, þau geta hætt að giska. td. ef þú ert með herferð á facebook geturu séð aukningu á heimsóknir á vefsíðu í kjölfar hennar.
Hvað er CRM (customer relationship manegment)
Tækni til að stjórna samskiptum fyrirtækisins við viðskiptavini og hugsanlega viðskiptavini. Getur td. verið gagnagrunnur um viðskiptavini sem hjálpar þér að geta aðstoðað þá sem best.
Hvað er dæmi um CRM
Að bjóða fyrrum kúnna að forpanta sæti
að geyma kvartanir og hrós
bjóða upp á netspjall í takt við aukna netnotkun.
Afhverju skiptir CRM máli.
Markmiðið er að bæta viðskiptasambönd til langstíma til að viðhalda viðskiptavinum og þannig auka sölu og hagnað.