Saga sálfræðinnar - 24.ágúst

0.0(0)
Studied by 0 people
call kaiCall Kai
Locked
learnLearn
examPractice Test
spaced repetitionSpaced Repetition
heart puzzleMatch
flashcardsFlashcards
GameKnowt Play
Card Sorting

1/24

encourage image

There's no tags or description

Looks like no tags are added yet.

Last updated 11:11 PM on 8/24/26
Name
Mastery
Learn
Test
Matching
Spaced
Call with Kai
Chat

No analytics yet

Send a link to your students to track their progress

25 Terms

1
New cards

Hver er munurinn á lýsingu á X og kenningu um X?

Lýsing á X kemur á undan kenningum um X

Fyrst þarf að gera grein fyrir því hvað fyrirbærið er áður en hægt er að setja fram mismunandi kenningar sem skýra það

2
New cards

Hvað er hugtakaleg (forempirísk) spurning?

Spurning á borð við ,,Hvað er X?” Hún er ekki leyst með því að safna og greina gögn heldur með hugtakalegri greiningu

3
New cards

Hver eru fjögur ,,hugtakaleg amboð” (conceptual-notational devices)?

Skilgreining, stikagreining, framsetning viðmiðunardæmis og reiknikerfi

4
New cards

Hvað er stikagreining (parametric analysis)?

Að greina fyrirbæri í stika sem geta tekið mismunandi gildi og sýna þannig hvernig fyrirbæri sömu tegundar geta verið lík eða ólík.

5
New cards

Hvaða þrír stikar lýsa lit?

Ljómi (value/lightness), mettun (chroma/saturation) og litblær (hue)

6
New cards

Hvernig er hegðun skilgreind í hegðunarformúlunni?

H = MA = <E, V, Vn, K, F, Á, PS, Þ>

Hegðun (H) er marksækið atferli (MA) sem má greina í átta stika

7
New cards

Hvað stendur E fyrir í hegðunarformúlunni?

Einstakling (Identity)

8
New cards

Hvað stendur V fyrir?

Vilja (Want)

9
New cards

Hvað stendur Vn fyrir?

Vitneskju (Know)

10
New cards

Hvað stendur K fyrir?

Kunnáttu (Know-How)

11
New cards

Hvað stendur F fyrir?

Framkvæmd (Performance)

12
New cards

Hvað stendur Á fyrir?

Árangur (Achievement)

13
New cards

Hvað stendur PS fyrir?

Persónusérkenni (Personal Characteristics)

14
New cards

Hvað stendur Þ fyrir?

Þýðingu (Significance)

15
New cards

Hvað er einfalt reiknikerfi (calculational system)?

Kerfi með endanlegu mengi staka og aðgerða. Þegar aðgerð er framkvæmd á staki verður til útkoma sem er einnig stak.

16
New cards

Hvaða aðgerðir eru notaðar í reiknikerfinu fyrir hegðun?

Innsetning (substitution), eyðing (deletion) og hlutleysa (identity), þó hlutleysisaðgerðin skipti ekki máli hér

17
New cards

Hver er munurinn á innsetningu og eyðingu?

Innsetning gefur ákveðna hegðunartegund, en eyðing gefur ákveðna lýsingu á hegðun

18
New cards

Hvað er vísvitandi atferli (Deliberate Action)?

Hegðun sem má lýsa sem því ,,að breyta af ásettu ráði”. Hún fæst þegar hegðun er sett inn sem gildi á vilja (V) og vitneskju (Vn)

19
New cards

Hvað er félagsleg athöfn (Social Practice)?

Hegðun sem leiðir af sér aðra hegðun. Hún felur í sér fleiri en einn einstakling og er hegðunarmynstur sem yfirleitt þarf að kenna fólki.

20
New cards

Hvað þýðir að hegðun sé marglaga?

Hegðun getur falið í sér aðra hegðun. Þegar spurt er um útfærslu hegðunar förum við niður þýðingarstigann en þegar spurt er um þýðingu hennar förum við upp.

21
New cards

Hvað er eyðing (deletion)?

Að ákveða að segja ekkert um ákveðinn stika, t.d. vegna skorts á upplýsingum, áhugaleysis eða vegna þess að við viljum ekki taka afstöðu til hans. Eyðing er táknuð með θ (þeta).

22
New cards

Hvaða hegðunarlýsingar má fá með eyðingu?

Gerandalýsingu, verklýsingu, framkvæmdarlýsingu, árangurslýsingu og tilraunarlýsingu. Einnig má lýsa klassískri og virkri skilyrðingu með ákveðnum eyðingum.

23
New cards

Hvaða grófu flokkar eru notaðir í stikagreiningu á persónu?

Tilhneigingar, máttur og afleiður. Undir þeim eru m.a. persónuleikaþættir, viðhorf, áhugamál, stíll/háttur, geta, þekking, gildismat, ástand, burðir og líkami. Þetta eru undirstikar PS-stikans

24
New cards

Hvernig er persóna skilgreind?

Persóna er einstaklingur sem á sér sögu um að breyta af ásettu ráði eftir félagslegum leiðum

25
New cards

Hvernig eru veikindi (pathology) skilgreind í lýsandi sálfræði?

Veruleg skerðing á getu manneskju til að breyta af ásettu ráði, þ.e. til þátttöku í félagslegum athöfnum samfélagsins