1/49
Tjáskipti manna
Name | Mastery | Learn | Test | Matching | Spaced | Call with Kai | Chat |
|---|
No analytics yet
Send a link to your students to track their progress
Hvað er málstol (aphasia)?
Erfiðleikar við að skilja eða mynda mál vegna heilaskaða.
Erfiðleikarnir skýrast ekki einfaldlega af heyrnarleysi, hreyfihömlun eða skorti á áhuga.
Hvað er hliðleitni (lateralization)?
Þegar ákveðin færni eða starfsemi er frekar tengd öðru heilahvelinu en hinu. Þetta endurspeglar sérhæfingu heilahvelanna.
Hvaða heilahvel er helst tengt tungumáli?
Vinstra heilahvelið hjá flestum einstaklingum.
Flestar máltruflanir vegna heilaskaða tengjast skaða vinstra megin.
Hvaða hlutverk hefur hægra heilahvelið í samskiptum?
Það tengist meðal annars hljómfalli, tjáningu og túlkun tilfinninga og rýmdarskynjun.
Hvað er málmyndun (language production)?
Ferlið við að mynda mál, sem krefst samstarfs margra heilasvæða. Við þurfum fyrst eitthvað til að tala um, t.d. skynjun, minningar eða ímyndun. Broca-svæðið er mikilvægt í málmyndun.
Hvað er málskilningur (language comprehension)?
Ferlið við að greina og skilja orð og merkingu þeirra.
Wernicke-svæðið gegnir mikilvægu hlutverki í að bera kennsl á orð.
Hvað er bragfræði (prosody)?
Hrynjandi, hljómur og áherslur í máli sem miðla merkingu umfram sjálfa merkingu orðanna. Prosody er sérstaklega mikilvægt fyrir tilfinningalegt innihald máls.
Hvaða heilahvel er sérstaklega mikilvægt fyrir prosody?
Hægra heilahvelið.
Hvað er raddblinda (phonagnosia)?
Skert hæfni til að þekkja raddir, án þess að geta ekki þekkt orð eða merkingu þeirra.
Hvað er heilaskaði tengist raddblindu (phonagnosia)?
Yfirleitt skaði á hægra heilahveli, meðal annars hvirfilblaði eða aftari hluta gagnaugablaðs.
Hvað er Broca-málstol (Broca's aphasia)?
Málstol sem einkennist af málreglustoli (agrammatism), nefnistoli (anomia) og erfiðleikum með framburð. Tal er hægt og málmyndun er verri en málskilningur.
Hvar er Broca-svæðið (Broca's area)?
Á ennisblaði (frontal lobe) vinstra heilahvels, nálægt hreyfiberki (motor cortex).
Hvernig er tal einstaklings með Broca-málstol?
Hægt og óreiprennandi. Einstaklingurinn á erfitt með að finna og koma frá sér réttum orðum.
Hvernig er málskilningur við Broca-málstol?
Málskilningur er yfirleitt betri en málmyndun.
Hvað er málreglustol (agrammatism)?
Erfiðleikar við að nota málfræðilega uppbyggingu tungumáls.
Hvað getur verið erfitt að skilja við málreglustol?
Flóknari málfræðilegar setningar, t.d. þolmyndarsetningar, geta valdið sérstökum erfiðleikum.
Hvað er nefnistol (anomic aphasia/anomia)?
Erfiðleikar við að finna eða muna rétta orðið til að lýsa hlut, aðgerð eða eiginleika.
Hvað er umorðun (circumlocution)?
Þegar einstaklingur sem finnur ekki rétta orðið lýsir því eða finnur aðra leið til að segja það sem hann ætlar.
Hvað er hreyfistol við myndun máls (apraxia of speech)?
Skert geta til að skipuleggja og framkvæma réttar hreyfingar tungu, vara og háls sem þarf til að mynda málhljóð.
Hvaða heilasvæði tengist hreyfistoli við myndun máls?
Skaði á eyjarblaði (insula) tengist hreyfistoli við myndun máls.
Hvar er Wernicke-svæðið (Wernicke's area)?
Á hljóðnáms-tengslaberki (auditory association cortex) á vinstra gagnaugablaði.
Hvert er hlutverk Wernicke-svæðisins?
Það er mikilvægt fyrir málskilning og myndun merkingarbærs máls.
Hvað er Wernicke-málstol (Wernicke's aphasia)?
Málstol sem einkennist af slökum málskilningi og reiprennandi en merkingarlitlu tali.
Hvernig er tal við Wernicke-málstol?
Reiprennandi, en það sem einstaklingurinn segir getur verið merkingarlítið.
Hvernig er málskilningur við Wernicke-málstol?
Slakur.
Hvaða innsæi getur einstaklingur með Wernicke-málstol haft í eigin vanda?
Hann getur haft takmarkað innsæi í málvandann.
Hvað er hrein heyrnardeyfa fyrir orðum (pure word deafness)?
Einstaklingurinn heyrir, getur talað og oft lesið og skrifað, en nær ekki að skilja eða bera kennsl á töluð orð.
Er pure word deafness venjulegt heyrnarleysi?
Nei. Einstaklingurinn heyrir hljóð en nær ekki að umbreyta málhljóðunum yfir í þekkjanleg orð.
Hvaða skaði getur valdið pure word deafness?
Skemmdir á superior temporal gyrus eða hljóðinntaki til þess svæðis.
Hvert er hlutverk aftara tungumálasvæðisins (posterior language area)?
Það tekur þátt í því að tengja orð við merkingu þeirra. Glærurnar aðgreina þannig orðþekkingu Wernicke-svæðisins frá frekari merkingarúrvinnslu aftara tungumálasvæðisins.
Hvað er transcortical sensory aphasia?
Málstol þar sem einstaklingur á í erfiðleikum með málskilning og myndun merkingarbærs máls, en getur samt endurtekið það sem sagt er við hann.
Hvaða svæði skaddast við transcortical sensory aphasia?
Aftara tungumálasvæðið (posterior language area).
Hvað er leiðnimálstol (conduction aphasia)?
Málstol þar sem málmyndun og málskilningur eru tiltölulega eðlileg, en einstaklingurinn á erfitt með að endurtaka orð sem hann heyrir.
Hvað er arcuate fasciculus?
Knippi taugaþráða sem tengir Wernicke- og Broca-svæðið.
Hvað gerist ef arcuate fasciculus skaddast?
Það getur valdið leiðnimálstoli (conduction aphasia).
Hver er beina leiðin milli Wernicke- og Broca-svæðis?
Leið um arcuate fasciculus. Skaði á henni veldur leiðnimálstoli.
Hver er óbeina leiðin sem glærurnar lýsa?
Leið milli aftara tungumálasvæðisins og Broca-svæðisins. Skaði getur valdið skertum orðskilningi.
Hvað segja rannsóknir á málstoli hjá heyrnarlausum okkur?
Að tungumál er ekki eingöngu talað mál. Amerískt táknmál (ASL) er heilsteypt tungumálakerfi og getur einnig orðið fyrir áhrifum málstols.
Hvað er stam (stuttering)?
Málröskun sem einkennist af tíðum málhléum, lengingu hljóða eða endurtekningu hljóða, atkvæða eða orða, sem truflar liðleika málsins.
Broca-málstol: tal – skilningur – endurtekning – nefnifærni?
Tal: óreiprennandi
Skilningur: góður
Endurtekning: léleg
Nefnifærni: léleg
Wernicke-málstol: tal – skilningur – endurtekning – nefnifærni?
Tal: reiprennandi
Skilningur: lélegur
Endurtekning: léleg
Nefnifærni: léleg
Conduction aphasia: tal – skilningur – endurtekning – nefnifærni?
Tal: reiprennandi
Skilningur: góður
Endurtekning: léleg
Nefnifærni: góð.
Anomic aphasia: tal – skilningur – endurtekning – nefnifærni?
Tal: reiprennandi
Skilningur: góður
Endurtekning: góð
Nefnifærni: léleg.
Transcortical sensory aphasia: tal – skilningur – endurtekning – nefnifærni?
Tal: reiprennandi
Skilningur: lélegur
Endurtekning: góð
Nefnifærni: léleg.
Pure word deafness: tal – skilningur – endurtekning – nefnifærni?
Tal: reiprennandi
Skilningur á töluðu máli: lélegur
Endurtekning: léleg
Nefnifærni: góð.
Hver er einfaldasti munurinn á Broca- og Wernicke-málstoli?
Broca → erfitt að koma málinu frá sér, skilningur betri.
Wernicke → talar reiprennandi en skilur illa og talið getur verið merkingarlítið.
Hvaða málstol á ég að hugsa um ef ENDURTEKNING er aðalvandamálið?
Leiðnimálstol (conduction aphasia) → hugsa arcuate fasciculus.
Hvaða málstol á ég að hugsa um ef ENDURTEKNING er góð en SKILNINGUR lélegur?
Transcortical sensory aphasia.
Hvaða málstol á ég að hugsa um ef aðalvandamálið er að FINNA ORÐ?
Nefnistol (anomic aphasia/anomia).
Broca → FRAMLEIÐA
Wernicke → SKILJA
Arcuate fasciculus → ENDURTAKA
Anomia → FINNA ORÐ
Prosody → TILFINNING/HJÓMFALL → hægra heilahvel
Phonagnosia → ÞEKKJA RÖDD → hægra heilahvel