1/244
Allt unnið úr glærunum
Name | Mastery | Learn | Test | Matching | Spaced |
---|
No study sessions yet.
Tvær boðleiðir í samskiptum milli frumna
Rafboð og efnaboð
Hvað er rafboð?
Breyting á rafspennu yfir frumuhimnu sem berast eftir frumunni, vegna himnuspennu eða ertanlegra frumna, e.o. tauga- og vöðvafrumur
Hvernig verður himnuspenna?
Himnuspenna verður vegna ólíkrasamsetningar (styrks) ákveðinna jóna í utanfrumu og innanfrumuvökva við yfirborð himnunnar
Hvernig verða efnaboð?
Boðefni (signal molegules, transmitters or ligands) eru losuð í utanfrumuvökvann, sem tengjast viðtökum (receptors) á frumuhimnu markfrumunnar (target cell), við það fara staðbundin (paracrine og autocrine efni) og víðtæk áhrif (hormón) í frumunni
4 grunnleiðir líkamanns fyrir frumu-frumu samskipti
Gatatengi, contact dependant (snertiháð) samskipti, paracrine og autocrine merki (hafa áhrif á nálægar frumur og long distance samskipti
Hverjar eru local samskiptaleiðirnar 3
Gatatengi, snerti-háð samskipti og efni sem berast í utanfrumuvökvann
Hvernig virka samskipti í gegnum gatatengi?
Himnuprótein tveggja frumna sameinast við það opnast próteingöng sem geta opnast og lokast, þegar göngin eru opin er opið fyrir rafboð og efnaboð
Hvar finnast gatatengi?
í hjartavöðvanum, lungu, lifur, taugafrumum í heila, sumum sléttum vöðvum og víðar
Hvernig virka snertiháð samskipti?
Yfirboðsprótein einnar frumur tengjast við himnupróteins annarrar frumu og CAM sameindir taka á móti boðum í frumu frumu samskiptum
Hvar finnast snertiháð samskiptatengin?
meðal annars í ónæmiskerfinu
Paracrine og autocrine merki (sem hafa áhrif á nálægar frumur, fara ekki í blóðrásina)
Paracrine: efni sem er losað úr frumu í millifrumuvökann en virkar á nálægar frumur
Autocrine: efni sem er losað úr frumu í millifrumuvökvann en virkar á frumuna sem losaði efnið
Long distance samskipti (m. hormónum og taugaboðefni)
Hormón: Efnaboð sem eru send með blóðrásinni og dreifast þannig um líkamann, markfrumurnar hafa viðtaka fyrir því hormóni sem virkar á það
Taugaboðefni: eru hraðvirk og virka á nálægar frumur
Taugahormón: eru losuð í blóðrásina
Taugabeinar: eru hægvirkari en taugaboðefni
Hver er leið frumuboðefna
Signal molecule (ligand/bindill) - binds to → membrane receptor protein (viðtaki) - activates → intracellular signal molecule - alter → target proteins - create → response
Ef viðtakar frumu eru í frumuhimnunni (prótein eða glýkóprótein) gerist svarið…
hratt
Ef viðtakar frumu eru í umfryminu og/eða kjarna gerist svarið…
hægt
Ef boðefni er __________ kemst það inn í frumu en __________ komast ekki inn og viðtakar þeirra eru því í frumuhimnunni
Lipophilic (fitusækið) … lipophobic (ekki fitusækið)
Hvernig virkar boðflutningur (signal transduction)
boðefni (first messenger) virkja viðtaka í frumuhimnunni og innanfrumuefnin (second messenger) bera skilaboðin áfram
Hvað gerist inn í frumu?
viðtakar í frumuhimnu virkjast og hafa áhrif á prótein kínasa og mögnunarensím í himnu eða við innra borð hennar, þessi ensím mynda svo second messenger (innanfrumuboðin). Innanfrumuboðin breyta jónagöngunum (opna/loka) sem hefur áhrif á himnuspennuna, þau auka styrk innanfrumu Ca2+ og hafa áhríf á ensímavirknina (prótein kínasa). Þetta veldur einhverju svari frá frumunni (cell response)
Hverjir eru helstu viðtakar í frumuhimnunni?
Efnastýrð jónagöng, Viðtakar tengdir G-próteinum, viðtakaensím og integrin viðtakar
Hvernig virka efnastýrð jónagöng?
efnastýrð jónagöng eru einföldustu og hraðvirkustu viðtakarnir, þetta eru próteingöng sem stjórna gegndræpi frumuhimnunnar með því að opnast og lokast eftir þörf, þau geta verð sérhæfð fyrir jónir, þau eru mikilvæg í tauga- og vöðvafrumum (excitable cells)
Hvernig virka viðtakar sem eru tengdir G-Próteinum (GPCR)
Þetta er stór og flókin sameind sem tengist g-próteini á innra yfirborði frumuhimnu þegar boðefnið tengist við viðtakann verður strúktúrabreyting á g-próteininu, þetta opnar jónagöng og virkjar ensím
Hver eru svörin við G-prótein viðtaka
adenylyl cyclase- cAMP eða fosfólípasi í gegnum c kerfið
Hvernig virka viðtakaensím?
Tyrosine kinase (TK) transfers a phosphate group from ATP to a tyrosine (an amino acid) og a protein
Hvernig virka integrin viðtakar
Viðtakinn er tengdur frymisgrindinni (fer í gegnum frumuhimnuna)
Hvernig skiptast próteinin sem stjórna frumusvari upp í flokka?
Ensím sem koma að metabolisma
Motor prótein sem koma að vöðvasamdrétti og cytoskeletal hreyfingu
Prótein sem stjórna genavirkni og nýmyndun próteina
Himnuflutningsprótein og viðtakar
Hvað er Novel signal molecule?
Þetta eru nýlega uppgötvuð boðefni, meðal annars Ca2+, NO, CO, H2S (lofttegundir) og Eicosanoid (fituefni)
Hvernig virkar Ca2+ sem boðefni?
magn Ca2+ í ICF hækkar þegar efnastýrð og/eða soennustírð kalsíum göng opnast og hleypa kalsíum jónum inn úr ECF, eða úr frymisnetinu
Hvernig virkar lofttegundin nituroxíð (NO) sem boðefni?
Það er myndað úr arginini og flæðir inn í umfrymið, sem stuðlar að myndun cGMP, helmingunartíminn þeirra er aðeins 2-30 sek, þetta er sérlega heppilegt sem boðefni í heila og í sléttum vöðvafrumum (sér til slökunar)
Hvernig virkar lofttegundin kolmónoxið (CO) sem boðefni?
Það flæðir inn í umfrymið og virkjar guanylyl cyclasa sem stuðlar að myndun cGMP (í taugavef og sléttum vöðvum)
Hvernig virkar lofttegundin vetnissúlfíð (H2S) sem boðefni?
Hjarta og æðakerfið eru helstu marklíffærin (slaka á æðaveggnum), forverar vetnissúlfats koma úr fæðu eins og hvítlauk
Hvernig virka fituefnið Eicosanoid sem boðefni?
eicosand er myndað úr arachidonic (AA) sýru sem er úr fosfólíðíðum í frumuhimnunni, sem verður annað hvort leukotriene (þar sem lípóoxygenasi umbreytir AA, hann er úr ákveðnum gerðum af hvítum blóðkornum og er gjarnan í öndunarveginum) eða fer til prostanoids (þar sem COX umbreytir AA í prostaglandin (áhrif: bólgumyndandi, sótthiti og svefn) eða throboxane (áhrif: blóðstorknun)
Hvernig virka viðtakar?
viðtakar eru prótein svo þau haga sér eins og önnur prótein, þeas þau mettast, þau sýna ákveðna sækni (sértækni) og boðefni keppa oft um bindistaði og svo hafa þau isoform
Hvað er agónisti?
Efni sem hafa sækni og virkja viðtaka, eins og Acetylcholine og Noradrenalín
Hvað er antagónisti?
Efni sem hafa sækni en virkja ekki viðtaka, koma í veg fyrir að boðefni geta tengst viðtökum, eins og atrópín, kúrari, fentólamín og própranólól
Hvernig virka mismunandi viðtakagerðir fyrir hvert boðefni?
Mismunandi viðtakar valda mismunandi áhrif á frumu (frá sama boðefni), eins og adrenalín fyrir rákótta vs. slétta vöðva
Hvernig breytist fjöldi viðtaka í frumum með tíma?
gamlir viðtakar brotna niður með tíma og nýjir koma í staðinn með 3 ferlum, down-regulation, desensitization og up-regulation
Hvað er down-regulation?
Fækkun viðtaka eða minni svörun þeirra vegna óeðlilega hás styrks boðefnis (eða hormóna) í langan tíma, eins og lyfhaþol
Hvað er Desensitization (afnæming)?
Fljótleg gerð down regulation, til dæmis með því að bæta fosfathóp á viðtaka
Hvað er up-regulation?
Fjölgun viðtaka vegna óeðlilega lágs syrks boðefnis (eða hormóna) í langan tíma, eins og ef taugafruma laskast og sendir frá sér minna af boðefnum þá getur markfruma aukið fjölda viðtaka til að auka næmni
Hvernig er stöðvað virkni viðtaka?
með efnum (eins og ensímum) sem brjóta niður boðefni í utanfrumuvökvanum (t.d. acetylkolinesterasi sem brýtur niður acetylkólín) eða önnur efni tekin upp í nærstaddar frumur eða inn í frumulíffæri (eins og Ca2+)
Hverjar eru mismunandi gerðir af stjórnkerfum
það er innkirtlareflex, taugareflex og samblanda af báðu
Hver er munurinn á tauga og hormónastjórnun (specificity, nature of the signal, speed, duration of action, coding for stimulus intensity)?
Property | Neural reflex | Endocrine reflex |
---|---|---|
Specificity | Each neuron terminates on a single target cell or on a limited number of adjacent target cells | most cells in the body are exposed to a hormone. the response depends on which cells have receptors for the hormone |
Nature of the signal | Electrical signal that passes through neuron, then chemical neurotransmitters that carry the signal from cell to cell. in a few cases, signals pass from cell to cell through gap junctions | Chemical signals secreted in the blood for distribution throughout the body |
Speed | very rapid | distribution of the signal and onset of action are much slower than in neural responses |
Duration of action | usually very short, responses of longer duration are mediated by neuromodulators | responses usually last longer than neural responses |
Coding for stimulus intensity | each signal is identical in strength. stimulus intensity is correlated with increased frequency of signaling | stimulus intensity is correlated with amount of hormone secreted |
Hverjar eru helstu samskiptaleiðir líkamans?
Taugaboðefni og hormón
Hver er skilgreiningin á hormóni?
Efni sem seytt er út í blóðrásina af innkirtlafrumum (endocrine cells) eða sérhæfðum taugafrumum. Efnin berast með blóðrás til annara hluta líkamans þar sem þau hafa áhrif á viðtaka (receptors) á markfrumum (target cell) og geta komið af stað svari (response)
Hvernig virka hormón?
Hormón stjórna hraða á ensímavirkni, stjórna flutningi jóna og annarra efna yfir frumuhimnu og stjórna genatjáningu og myndun próteinam, hormón virka í litlum styrk, hafa tímabundin áhrif og fjarnan langtíma og stöðuga virkni
Hvaða innkirtlar losa hormón?
Heiladingull (oxytósín), skjaldkirtill, kalkkitlar, nýrnahettubörkur (adrenalín og noradrenalín), heilaköngull og hóstakirtill
Hvaða líffæri eru með kirtilvef
undirstúka, bris, eggjastokkar, eistu, nýru, magi, smáþarmar, húð, hjarta og fylgjan
Hvernig eru hormón flokkuð?
eftir uppruna, eftir vitökum, eftir því hvort heilinn stjórnar losuninni eða ekki eða eftir efnafræði (peptíð/prótein -, stera- eða amínósýruafleiðu hormón)
Hvað einkennir peptíð/prótein hormón?
Langflest hormón, hafa misstórar amínósýrukeðjur, þau eru vatnsleysanleg og geta vanalega ekki flust yfir frumuhimnu, helmingunartíminn er stuttur og svarið hratt
Hver er myndun, pökkun og útflutningur Preprohormóna?
stórt óvirkt hormón (kemur beint frá ríbósóm)
Hver er myndun, pökkun og útflutningur Prehormóna?
verður til í ER holi og er óvirkt. Þetta fer yfir í Golgi kerfið og er þar pakkað inn í seytibólu ásamt ensímum
Hver er myndun, pökkun og útflutningur hormóna?
Ensím í seytibólu klippa prohormón og mynda virkt hormón og eru þannig geymd í umfryminu en er seytt úr frumunni þegar boð berast um það
Hvað einkennir sterahormón?
Þau eru öll úr kólesteróli (svipuð bygging), búin til í fáum líffærum, fituleysanleg og leysast ekki vel í plasma (vatnsfælin) og eru því próteinbundin
Hvernig myndast og losast sterahormón?
Þau myndast í slétta frymisnetinu, þau eru fitusækin og flæða því auðveldlega yfir frumuhimnur, þau geymast ekki í bólum og eru mynduð þegar þörf krefst (on-demand).
Hvernig ferðast sterahormón?
Þau eru vatnsfælin og bindast flutningspróteinum til að flytja þau í blóðrásina, flutningspróteinin auka líftíma sterahormónanna og verja þau gegn ensímum, til þess að komast yfir frumuna þurfa þau að losna frá flutningspróteininu
Hvernig virka sterahormón?
Viðtakarnir eru annað hvort innan og utan á frumu (fer eftir viðtaka og stera), Þegar sterahormónið binst við viðtaka inn í frumunni og binst DNA-inu og hvetur/letur á genum (frekar hægvirkt) , ef þau bindast við frumuhimnuviðtaka byrjar second messenger svari (mun hraðvirkara)
Hvað einkennir amín hormón?
Amín eru afleiður amínósýranna tyrósíns (katekólamín (adrenalín, noradrenalín og dópamín), taugahormón sem bindast utan á frumu og skjaldkirtilskormón sem virkjast inn í frumum) og tryphtofan (melatónín sem er framleitt í heilaköngli)
Hvernig er losun hormóna stjórnuð?
Helstu stjórnunarferlarnir: breyting í styrk jóna eða næringarefni í blóði (insúlín), ósjálfráða taugakerfið eða önnur hormón sem stjórna losun (trópísk hormón). Hormón eru oft losuð í stórum skömmtum og því getur verið mikil sveifla í styrk hormóna í blóðinu, svo eru líka sum hormón sem stjórnast af dægursveiflu (eins og melatónín)
Hvað er afturkast (feed-back)?
Innkirtlar seyta hromónum ásamt því að fá upplýsingar um svar markvefsins (target tissue), neikvætt afturkast: algengast, ef svar markvefs er lítið þá eykst hormónaseytun, en ef svar markvefs er of mikið þá slokknar á starfsemi innkirtilsins, jákvætt afturkast: svar markvefs veludr enn meiri hormónalosun, utanaðkomandi þættir þurfa að koma inn til að slökkva á afturkastinu
Hvað er einfaldasta stjórnkerfið þegar kemur að losun hormóna og hvernig virkar það?
Þegar að áreiti (stimuli) hefur bein áhrif á innkirtilsfrumur (einfalt innkirtlareflex), þar sem fruman er bæði sensor og stjórnstöð, þetta leiðir yfirleitt til neikvætts afturkasts (eins og insúlín og glúkagon)
Komdu með dæmi um neikvætt afturkast
insúlín er myndað af innkirtilsfrumum í brisi, styrkur blóðsins er monitored í brisinu, ef blóðsykurinn fer yfir 100mg/100ml blóðs þá losnar insúlín, sem örvar upptöku flúkósa í vöðva og fituvef, við það minnkar styrkur glúkósa í blóði sem leiðir til neikvæðs afturkasts og losun insúlíns stöðvast
Hvernig hefur taugastjórnun áhrif á losun hormóna?
Aðkoma taugakerfisins að losun hormóna, taugakerfið getur stuðlað að losun hormóna sem er ekki taugahormón (eins og insúlín), einnig geta ákveðnar taugafrumur seytt taugahormónum (nýrnahettumergur að seyta adrenalíni) og kirtlar í heilanum seyta taugahormónum (heiladingull og heilaköngull)
Hvernig skiptist heiladingullinn?
Fremri- og afturheiladingull
Hvað gerir afturheiladingullinn?
Hann er geymsludingull, sem geymir taugahormón frá undirstúkunni og seytir þeim, þau hormón sem eru geymd og seytt af afturheiladdinglinum eru vasóðressín, ADH og oxytósín
Hvað gerir framheiladingullinn?
Hann er master-gland (einn mikilvægasti kirtill líkamans) hann seytir hormónum sem tengjast vexti, æxlun og metabólisma: prólaktíni, thyrotopin, adrenocorticotropin, vaxtarhormónum, follivle stimulating hormone og luteneizing hormone. Undirtstúkan stjórnar losuninni. 5/6 hormónunum eru stjórnuð af undirstúkunni en hin hormónin eru stjórnuð af öðrum hormónum
Hvað er viðbragðsbogi/ afturkastsbogar (undirstúku - heiladinguls bogar)?
Aðallega long-loop neg. feedback (þar er losun á hormóni út innkritli sem stuðlar að neikvæðu afturkasti, líka short loop neg. feedback (heiladingulshormón veldur minnkun á losun undirstúku og ultra short loop neg. feedback (hormón með autocrine og paracrine frumu-frumu samskipti)
Komdu með dæmi um long loop negative feedback.
Stjórnun á kortisóli, sem er sterahormón, sem hefur áhrif á metabólimsa eykur styrk glúkósa í blóði, eykur blóðþrýsting, minnkar bólgur. Er stresshormón
Hvernig virkar samspil hormóna?
Þetta er frekar flókið spil þar sem nokkur hormón geta haft áhrif á sömu frumur/vefi á sama tíma, einnig til hormón sem hafa fleiri en ein áhrif (eins og kortisól og angiotensin II)
Hverjar eru þrjár samspilaleiðir hormóna?
Samlegðaráhrif (synergism), leyfi (permissiviness og antagónismi
Hverngi virkar samlegðaráhrif hormóna (synergism)?
Mismunandi hormón geta haft sömu áhrif á líkamann (en eftir mismunandi leiðum), ekki er alltaf vitað nákvæmlega hvað veldur því að samlegðaráhrif eru meiri en samanlögð virkni, gerist líka hjá öðrum efnum en hormónum
Komdu með dæmi um samlegðaráhrif hormóna?
Glúkagon (framleitt í brisi), kortisól og adrenalín hækka öll styrk glúkósa í blóði, þegar þau eru í hækkuðum styrk tvö eða þrjú saman, þá eru samlegðaráhrifin meiri en samanlögð virkni þeirra hver fyrir sig
Hvernig virkar leyfi (permissiviness) hormóna?
Ákveðin hormón geta ekki haft áhrif nema annað hormón sé til staðar
Komdu með dæmi um leyfi (permissiviness) hormóna.
Þroskun æxlunarfæra, sem er stjórnuð af gonadotrophic-releasing hormone (undirstúku), gonadotroponum (fremri heiladingli) og sterum (kynkirtlum), ef skjaldkirtilshormón eru ekki til staðar, tefst kynþroskinn þ´ratt fyrir að TH hefur enginn áhrif á kynþroskann
Hvernig virkar antagónismi hjá hormónum?
þegar tvö hormón hafa andstæð áhrif (getur verið þegar annað hormónið fækkar viðtökum fyrir hitt viðtakið eða mismunandi metabólískir ferlar.
Komdu með dæmi um Antagónsima hjá hormónum.
Bæði glúkagon og vaxtarhormón auka styrk glúkósa í blóði, þessi hormón eru því antagónistar insúlíns sem lækkar styrk glúkósa í blóði.
Hvernig virkar meinafræði innkirtla?
þetta snýst um jafnvægi ef það er ekki jafnvægi getur verið vanseyting (hyposecretion), ofseyting (hypersection) eða vannæmi (hyperresponsiveness)
Hvernig virkar vanseyting (hyposecretion)?
Ef að innkirtill seytir of litlu magni af hormónum vegna þess að kirtilfrumur starfa ekki eðlilega vegna erfðagalla eða efnaskorts, það myndast ekki nóg af stjórnhormóni eða það hefur áhrif á neikvæðu afturkasti
Hvernig virkar ofseyting (hypersecretion)?
innkirtill getur seytt óvenju miklu magni af hormónum vegna þess að t.d. kirtilfrumur starfa óeðlilega (vegna krabbameins)
Hvernig virkar vannæmi (hyperresponsiveness)?
Stafar af því að markfrumurnar svara hormónum ekki eðlilega. getur verið vegna þess að viðtakar hormónsins eru keki til staðar (vegna down-regulations) eða starfa ekki eðlilega, eða vegna þess að boðflutningur innan frumunnar er ábótavant.
Hvernig skiptist taugakerfið?
Miðtaugakerfið (heili og mæna) og úttaugakerfið (skyntaugafrumur og hreyfitaugafrumur (viljastýrt og ósjálfrátt (sympatískt (drifkerfið) og parasympatískt (sefkerfið)))
Hvað gerir axon terminal (taugaendi)?
hann inniheldur taugaboðefni
Hvað er cell body (frumubolur)?
það er stjórnstöð frumunnar, sem er með flest frumulíffærin
Hvað gera griplur (dendrites)?
þær taka við boðum og geta breytt um stærð og lögun, þau gegna flóknara hlutverki í CNS (central nervous system)
Hvað gera símar (axonar)?
þeri bera skilaboðin eftir frumunni, axon hillock er það svæði sem oxon liggur frá úttaugakerfisfrumu, geta verið nokkrir míkró upp í metra, boð flytjast sem rafboð eftir axonum og umbreytast í efnaboði á distal enda (kallast axonal transport)
Hverjar eru gerðirnar af axonal transport:
Retrograde (efni flutt í öfuga átt), anterograde (efni flutt niður eftir axon), motor protein (lanna með efnin eftir microtubules)
Hvað er taugamót (synapses)?
þar sem taugaendi (axon terminal) og markfruma mætast, kemísk taugaboð eru yfirleitt flutt yfir taugamót. Taugafrumurnar skiptast í presynaptic cell (fyrirmóta taugafruma) og postynaptic cell (eftirmóta taugafruma)
Hvað er glial fruma (taugatróðsfruma)?
þetta eru stuðningsfrumur fyrir taugafrumur og eru í meiri fjölda en taugafrumurnar
Hvað er Schwann fruma?
gerð Glia frumu ÚTK sem mynda mýelínslíður utan um taugafrumu
Hvað er Satellite fruma?
þetta er gerð glia frumu útk, scwhann fruma sem mynda ekki mýelínslíður
Hverjar eru glia frumur MTK?
Astrocytes, microglia, ependymal frumur og oligodendrocytes
Himnuspenna (upprifjun)
Himnuspenna stjórnast af flæði K+ út úr frumu í gegnum lekagöng, Na+ flæðir einnig inn en færri lekagöng, ef meira Na+ fær að flæða inn breytist himnuspennan, breytingar á flæði hafa samt ekki áhrif á styrk efnanna innan og utan frumu
Hver eru mikilvægu jónagöngin?
Lekagöng (sérstaklega Na+ og K+), mekanískt stýrð jónagöng (hjá skyntaugafrumum og virkjast við áreiti), efnastýrtð jónagöng (virkjast við boðefni) og spennustýrð jónagöng (virkjast við himnuspennubreytingar
Likilhugtök (varðandi taugafrumur og rafboð)
Himnuspenna (membrane potential): hvíldarspenna (resting membrane potential), spennubreytingar: stigspenna (graded potential) og boðspenna (action potential) og halli (gradient): rafhalli (electrical gradient), rafefnahalli (electrochemical gradient) og styrkhalli (concentration gradient)
Hvenig virkar stigspenna í taugafrumum (graded potentials)?
Gerist í griplum eða taugabolnum, er vegna breytingu á flæði jóna inn eða út úr frumu (hve mörg Na+ göng opnast og hve mikið flæðir inn og gerir himnuspennina minna neikvæða) ef stigspennan er nógu ster við trigger zone þá myndast boðspenna, ef hún er ekki nógu sterk deyr hún út (vegna útflæðis jákvæðra jóna og viðnám umfrymis) , fjöldi spennustýrða Na+ ganga á trigger zone, ef himnuspenna við þröskuld þá opnast göngin og boðspenna myndast
Hvernig virka boðspennur (action potentials) í taugafrumum?
Boðspennan berst frá trigger zone eftir axonum (allt eða ekkert), styrkur stigspennunnar hefur ekki áhrif á stærð boðspennunnar (stigspennan þarf að ná -55mv í taugafrumum), stærð boðsoennunnnar helst jöfn þegar hún færist eftir axonum taugafromum (upp í 30mV)
Hvert er boðspennuferlið?
Stigspenna nær þröskuldi
Spennustýrð Na+ göng opnast, Na+ flæðir inn
Jákvæðar hleðslur flæða innan axons
Hefur áhrif á himnuspennu til hliðar og þar opnast Na+ göng
Ónæmistíminn kemur í veg fyrir að Na+ göng opnist þar sem boðspenna er búin að myndast → boðspennan fer því ekki til baka og spennustýrð K+ göng leiða til endurskautunar
(s/ó) Boðspenna hefur áhrif á styrk jóna fyrir innan og utan frumu
ó - það er lítið magn af Na+ sem flæðir inn og K+ sem flæðir út í boðspennu
Hað er ónæmistími (absolute refractory period)?
sá tími eftir bosðennumyndun þar sem ekki er hægt að mynda nýjaboðspennu (tíminn sem að spennustýrðu Na+ göngin eru að losast (boðspennan þarf að klárast til að sú næsta getur myndast, ferðast bara í eina átt → niður símann)
Hvað er tornæmistími (relative refractory period)
kemur strax eftir ónæmistímanum (þá eru flest spennustýrðu Na+ lokuð og K+ göngin eru ennþá opin, það er ennþá hægt að mynda boðspennu en það þarf sterkari stigspennu til að ná í þröskuld fyrir boðspennu
Segðu frá því hvernig spennustýrð natríumgöng opnast og lokast.
at the resting membrane potential, the activation gate closes the channel
depolarizing stimulus arrives at the channel and activation gate opens
with activation gate open, Na+ enters the cell
inactivation gate closes and Na+ entry stops
during repolarization caused by K+ leaving the cell, the two gates reset to their original position
back to 1