Kafli 13 - Hagfræði
0.0(0)
Studied by 0 people
call kaiCall Kai
learnLearn
examPractice Test
spaced repetitionSpaced Repetition
heart puzzleMatch
flashcardsFlashcards
GameKnowt Play
Card Sorting
1/8
encourage image
There's no tags or description
Looks like no tags are added yet.
9 Terms
1
New cards
Hvert er markmið fyrirtækis í rekstrarhagfræði og hvernig er hagnaður skilgreindur?
Í hagfræði almennt er markmiðið að hámarka notagildi eða ávinning. Í rekstrarhagfræði er gert ráð fyrir að aðalmarkmiðið sé hámörkun hagnaðar.
• Hagnaður = heildartekjur − heildarkostnaður (HT − HK)
• Hvort hagnaðurinn er hagrænn eða bókhaldslegur fer eftir því hvaða kostnaður er dreginn frá (spjald 2).
2
New cards
Hvað er framleiðslufall og hvað er jaðarframleiðsla?
• Framleiðslufall lýsir því hve mikið magn af afurð er hægt að framleiða með ákveðnu magni af framleiðsluþáttum, t.d. vinnuafli.
• Jaðarframleiðsla sýnir hversu mikið framleiðslan eykst ef einni einingu af tilteknum framleiðsluþætti er bætt við (t.d. einum starfsmanni).
3
New cards
Hvað er minnkandi jaðarframleiðsla og hvaða áhrif hefur hún á kostnað?
Framleiðslan vex stigminnkandi þegar einni viðbótareiningu framleiðsluþáttar er bætt við, því aðrir framleiðsluþættir eru takmarkaðir.
• Dæmi: Á bóndabýli eykur hver nýr starfsmaður framleiðsluna minna og minna því vélar, tæki og landsvæði eru takmörkuð.
• Framleiðslufallið verður flatara eftir því sem vinnuafl eykst.
• Kostnaðarferillinn er spegilmynd framleiðslufallsins: þar sem jaðarafköst eru há er kostnaðarauki lítill, en þegar þau minnka eykst kostnaður hraðar við hverja viðbótareiningu.
Framleiðslan vex stigminnkandi þegar einni viðbótareiningu framleiðsluþáttar er bætt við, því aðrir framleiðsluþættir eru takmarkaðir.
Dæmi: Á bóndabýli eykur hver nýr starfsmaður framleiðsluna minna og minna því vélar, tæki og landsvæði eru takmörkuð.
Framleiðslufallið verður flatara eftir því sem vinnuafl eykst.
Kostnaðarferillinn er spegilmynd framleiðslufallsins: þar sem jaðarafköst eru há er kostnaðarauki lítill, en þegar þau minnka eykst kostnaður hraðar við hverja viðbótareiningu.
4
New cards
Hver er munurinn á föstum og breytilegum kostnaði? Gefið dæmi.
• Fastur kostnaður (FK) breytist ekki þótt framleiðslan breytist. Bakarí: fasteignagjöld, vextir af fasteignaláni, ofn, skrifstofustólar, gluggatjöld.
• Breytilegur kostnaður (BK) er háður framleiddu magni: breytist þegar framleiðslan breytist og hverfur þegar framleiðslu er hætt. Bakarí: mjólk og annað hráefni, starfsmenn, pakkningar, útkeyrslukostnaður (bensín).
• HK = FK + BK = FK + BEK × M
5
New cards
Skilgreinið:
1. Fastur einingarkostnaður (FEK)
2. Breytilegur einingarkostnaður (BEK)
3. Heildar einingarkostnaður (HEK)
Hugtak
Skilgreining
Formúla
Fastur einingarkostnaður (FEK)
Fastur kostnaður á hverja framleidda einingu, t.d. húsaleiga deilt með fjölda framleiddra eininga.
FEK = FK/M
Breytilegur einingarkostnaður (BEK)
Breytilegur kostnaður á hverja framleidda einingu, t.d. hráefniskostnaður á einingu.
BEK = BK/Q
Heildareiningarkostnaður (HEK)
Heildarkostnaður á hverja framleidda einingu að meðaltali.
HEK = HK/Q = FEK + BEK
6
New cards
Hvers vegna er HEK oft U-laga og hvar sker JK HEK?
• Lágt framleiðslustig: FEK er hár því fasti kostnaðurinn dreifist á fáar einingar. Þegar framleiðslan eykst lækkar FEK ört → HEK lækkar.
• Hærra framleiðslustig: BEK fer að vaxa, t.d. hækkar launakostnaður á einingu þegar unnið er í næturvinnu → HEK hækkar aftur.
• JK < HEK → HEK lækkandi: næsta framleidda eining dregur meðaltalið niður.
• JK > HEK → HEK hækkandi: næsta eining ýtir meðaltalinu upp.
• Þess vegna sker JK HEK í lágmarkspunkti HEK.
Lágt framleiðslustig: FEK er hár því fasti kostnaðurinn dreifist á fáar einingar. Þegar framleiðslan eykst lækkar FEK ört → HEK lækkar.
Hærra framleiðslustig: BEK fer að vaxa, t.d. hækkar launakostnaður á einingu þegar unnið er í næturvinnu → HEK hækkar aftur.
JK > HEK → HEK hækkandi: næsta eining ýtir meðaltalinu upp.
Þess vegna sker JK HEK í lágmarkspunkti HEK.
7
New cards
Hvernig getur breytilegur kostnaður á einingu (BEK) hegðað sér? Takið dæmi af bílaframleiðslu.
BEK getur verið etur verið stiglækkandi, hlutfallslegur eða stighækkandi.
• Fyrsti bíllinn kostar mjög mikið vegna mikils fasts kostnaðar (þróunarkostnaðar).
• Lækkandi á ákveðnu bili: magnafsláttur á hráefnum og aukin sérhæfing starfsfólks → aukin framleiðni og skilvirkni.
• Vaxandi aftur: þegar stærð verksmiðjunnar fer að setja skilyrði: greiða þarf yfirvinnu, vélar kikna undan álagi og starfsfólk mætir þreytt.
8
New cards
Hvers vegna er heildareiningarkostnaður (HEK) til langs tíma frábrugðinn HEK til skamms tíma?
Skiptingin í FK og BK fer eftir tímabilinu. Sumir kostnaðarliðir eru fastir til skamms tíma en breytilegir til langs tíma. Til langs tíma er allur kostnaður BK.
• Skammtíma: Bílaverksmiðja sem vill fara úr 1.000 í 1.200 bíla á dag getur aðeins fjölgað starfsmönnum, því stærð húsnæðis og færibönd eru föst. Vegna minnkandi jaðarafkasta hækkar HEK ört.
• Skammtíma HEK-ferillinn hliðrast til hægri eftir stærð verksmiðju, því FK er hærri í stærri verksmiðju.
• Langtíma: Fyrirtækið getur breytt öllum/flestum framleiðsluþáttum (stækkað verksmiðju, fjölgað færiböndum) og valið þann skammtímaferil sem hentar best → heldur HEK í lágmarki.
Skiptingin í FK og BK fer eftir tímabilinu. Sumir kostnaðarliðir eru fastir til skamms tíma en breytilegir til langs tíma. Til langs tíma er allur kostnaður BK.
Skammtíma: Bílaverksmiðja sem vill fara úr 1.000 í 1.200 bíla á dag getur aðeins fjölgað starfsmönnum, því stærð húsnæðis og færibönd eru föst. Vegna minnkandi jaðarafkasta hækkar HEK ört.
Skammtíma HEK-ferillinn hliðrast til hægri eftir stærð verksmiðju, því FK er hærri í stærri verksmiðju.
Langtíma: Fyrirtækið getur breytt öllum/flestum framleiðsluþáttum (stækkað verksmiðju, fjölgað færiböndum) og valið þann skammtímaferil sem hentar best → heldur HEK í lágmarki.
9
New cards
Hvað er vaxandi, föst og minnkandi stærðarhagkvæmni?
Lýsir hvernig HEK til lengri tíma litið breytist þegar framleiðslan eykst:
• Vaxandi stærðarhagkvæmni: langtíma HEK lækkar.
• Föst stærðarhagkvæmni: langtíma HEK er stöðugt.
• Minnkandi stærðarhagkvæmni: langtíma HEK hækkar.
Lýsir hvernig HEK til lengri tíma litið breytist þegar framleiðslan eykst:
Vaxandi stærðarhagkvæmni: langtíma HEK lækkar.
Föst stærðarhagkvæmni: langtíma HEK er stöðugt.
Minnkandi stærðarhagkvæmni: langtíma HEK hækkar.