Val á eigindlegri nálgun

0.0(0)
Studied by 0 people
call kaiCall Kai
learnLearn
examPractice Test
spaced repetitionSpaced Repetition
heart puzzleMatch
flashcardsFlashcards
GameKnowt Play
Card Sorting

1/14

encourage image

There's no tags or description

Looks like no tags are added yet.

15 Terms

1
New cards

Að velja viðeigandi eigindlega aðferð

  • til margar aðferðir

  • kennignar, nálganir og rannsóknarsnið

  • stundum er tveimur nálgunum beitt samtímis


2
New cards

Meginaðferðir í eigindlegum rannsóknum

  • hátternis og þjóðlýsing (ethnography)

  • grunduð kenning (grounded theory)

  • tilviksathugun (case study analysis)

  • frásagnanálgun (narrative approaches)

  • fyrirbæranálgun (phenomenological analysis)

  • samfélagsþátttökuaðferð (action research and community-based participatory research)


3
New cards

Ethnography: hátternis og þjóðlýsing

  • einkennandi fyrir mannfræði

  • Áherslan er á að rannsakandinn taki þátt í t.d. daglegu lífi hópsins (emic) en heldur sér ekki í fjarlægð (etic)

  • heildræn sýn

  • Holistic perspective; að horfa heildrænt á allt umhverfið með þeirra sjónarmið að leiðarljósi

  • þarf að setja sig mjög vel inn í líf og aðstæður fólksins til ða skilja samfélagið út frá þeirra menningu

  • Cultural relativism; að skilja samfélag eða hóp á þeirra eigin forsendum (ethnocentricism)

  • rannsakandi er oft með fólki í langan tíma og punktar hjá sér vettvangs nótur, skrifar niður hvað er að eiga sér stað


4
New cards

Grounded theory: grunduð kenning

  • ein af þekktustu kenningun

  • notað viðtöl

  • útskýrir hegðun fólks, viðhorf og hvaða merkingu það leggur í samskipti

  • er gagnleg fyrir þróun kenninga, rannsakandinn má ekki vera með of fast mótað kenningarlegt sjónarhorn fyrirfram, þróar skýringar eftir því sem líður á rannsóknina

  • gefur dýpri innsýn inn í fyrirbæri

  • Mjög skipulögð greining á viðtalsgögnum jafn óðum, fylgja viðtölum eftir, sífelldur samanburður

  • Rannsakandinn heldur dagbók (memos) um greiningarferlið sérstaklega hvað varðar ákvarðanir um túlkun gagna og niðurstöður

  • Kerfisbundin, skipuleg tækni er notuð við greiningu gagna

  • Rannsakandann fléttar saman kenningum og hugmyndafræði


5
New cards

Case studies analysis: Tilviksathugun

  • rannsókn að einhverju ákveðnu tilviki

  • tilvikið gæti verið geðdeild eða fyrirtæki

  • oft er fleiri en einni aðferð beitt til að afla gagna um tilvikið td viðtöl og þátttökuathugun

  • Bounded systems of action:

    • að ná djúpum skilningi í samhengi við umhverfið (extract depth and meaning in context)

    • margvísleg gögn eru tengd saman til að ná þessari dýpt í túlkun og samhengi

  • Góð aðferð til

    • að meta árangur úrræða (programme evaluation)

    • að skoða sögulegar og samfélagslegar breytingar

  • Gefur rannsakandanum meiri sveigjanleika en grunduð kenning


6
New cards

Narrative approaches: frásagnanálgun

  • Áherslan er lögð á mikilvægi talaðra orða (the spoken word)

    • hvernig eitthvað er sagt

    • hvað er sagt

    • ekki bara verið að skoða orðin eða textann heldur hvernig eru hlutir sagðir

  • Tvær aðferðir:

    • frásagnaraðferðir (narrative analysis)

      • saga, viðtöl til lengri tíma kannski aftur og aftur

      • reynt að leita að ákveðnum söguþræði við greiningu gagnanna

    • samtalslýsing/orðræðugreining (conversation and discourse analysis)

      • verið að greina hvaða orð eru notuð og tónninn í þeim

      • önnur hljóð eins og hlátur eða andvörp

      • noruð til að greina samskipti milli ráðgjafa og notenda


7
New cards

Phenomenological Analysis: Fyrirbæranálgun

  • Upplifun á fyrirbæri

    • áherslan er á djúpan skilning á fyrirbæri sem endist í langan tíma (prolonged immersion)

    • þátttakendur upplifa sameiginleg fyrirbæri: krabbamein, ættleiðing, orðið fyrir ofbeldi

  • þátttakendur valdir sem eiga eitthvað sameiginlegt

  • Að setja út fyrir sviga (bracketing)

    • að setja til hliðar fyrirfram ákveðnar hugmyndir um hvað er raunveruleiki

    • rannsakandinn þarf að geta sett eigin tilfinnignar um fyrirbærið til hliðar, reyna að skilja reynslu fólks á fyrirbærinu

  • Viðtöl eru skoðuð í þeim tilgangi að lýsa aðal kjarna (essence) eða þema

    • viðröl byrja oft með víðum opnum spurningum

  • Leitað er að orðasamböndum sem eru lýsandi (emblematic)

    • leita að ákveðnum þáttum sem útskýra fyrirbærið

  • Þessi orðsambönd eru tengd saman til að byggja upp ramma í kringum niðurstöðurnar


8
New cards

Samfélagsþátttökunálgun

  • þessi aðferð tengist samfélagsvinnu, leggja áherslu á að valdefla fólk

  • e. Action Research and Community based Participatory Research

  • Áherslan er lögð á

    • sjálfshjálp samfélagsins

    • jafnræðis tengsl milli rannsakandans og þátttakenda

    • vald

  • Í flestum tilvikum er átt við landfræðilegt samfélag en stundum er átt við samfélag af öðrum toga (de facto community) t.d.

    • vændiskonur

    • börn af erlendum uppruna

  • „Bottom up“ úrlausnir - ef úrlausnirnar koma að ofan þá nýtist þjónustan síður9

  • markmiðið er að bæta hag fólksisn og samfélagsins sem það tilheyrir

  • með þáttöku notenda er hægt að tryggja að þjónustan nýtist þeim sem best


9
New cards

Hlutverk rannsóknarspurninga

  • Gefa rannsókninni festu og stöðugleika

  • Afmarka rannsóknina

  • Halda rannsakanda við efnið

  • Gefa vísbendingar um um hvers konar gagna þarf að afla

  • Skapa rannsóknarskýrslunni/fræðigreininni ramma

  • höfum fókus á að niðurstöður svari rannsóknarspurningunni


10
New cards

Rannsóknarspurningar eigindlegra rannsókna

  • Opnar (fela ekki í sér já/nei svar)

  • Spyrja um hvað og hvernig

  • Kalla á lýsingar

  • Beina sjónum að ákveðnum hópum og/eða stöðum

  • Ekki spyrja um orsakir eða áhrif

  • Gerið ráð fyrir því að rannsóknarspurningin þróist í rannsóknarferlinu

  • Lykilatriði að hægt sé að svara rannsóknarspurningunni með eigindlegum aðferðum

Dæmi um eigindlegar rannsóknarspurningar:

  • Hver er reynsla eldri borga af stuðningsþjónustu sveitarfélaga?

  • Hver er reynsla erlendra kvenna af mæðravernd á Íslandi?

  • Hver er upplifun foreldra af því að eignast barn með downs heilkenni?

  • Hvernig taka foreldrar ungra barna ákvörðun um hvernig beri að skipta fæðingarorlofi sín á milli?


11
New cards

Að vera markviss

Dæmi um ómarkvissa spurningu:

  • Hvernig er annast um börn á Íslandi?

  • alltof víð og óljós

Markvissari spurningar:

  • Hver er reynsla feðra og mæðra, sem ekki búa saman, af samvinnu í umönnun barna sinna?

  • Hvaða þættir móta umönnunarþátttöku feðra sem ekki deila lögheimili með barni sínu?


12
New cards

Val á orðum

  • Forðist orð sem fela í sér orsök

  • Ekki er hægt að greina orsakir með eigindlegum aðferðum

  • spurja um reynslu, upplifun og merkingu

Dæmi um orðalag sem ber að forðast:

  • Hvað veldur…?

  • Hver eru áhrif…?

  • Hver eru tengsl…?


13
New cards

Tvær tegundir rannsóknaspurninga

  • Meginspurning

    • Ein aðalspurning sem lýsir meginefni rannsóknarinnar

  • Undirspurningar

    • Lýsa ákveðnum þáttum rannsóknarinnar

    • Undirspurningar eru fáar

  • Meginspurning, dæmi:

    • Hver er reynsla heimilislausra kvenna, sem nota vímuefni í æð, af úrræðum fyrir heimilislausa?

  • Undirspurningar, dæmi:

    • Hvers konar stuðningsúrræði nýtast konum sem nota vímuefni í æð?

    • Hvernig mótast reynsla kvennanna af stuðningsúrræðum af áfallasögu þeirra?


14
New cards

Ferlið við að móta rannsóknarspurningu

  • Kynna sér fyrri rannsóknir

  • Afmarka viðfangsefnið – hvaða efni, hvaða hópar, hvaða staðir?

  • Skilgreina hvers vegna er mikilvægt að rannsaka efnið

  • Efni rannsóknarinnar er ….

  • Þörf er á að rannsaka þetta vegna þess að ….

  • Rannsóknarspurningin sem höfð verður til hliðsjónar er: …..


15
New cards

Hvernig skal skrifa um markmið rannsóknar?

  • Byrja á einni setningu með meginmarkmiði áður en undirmarkmiðum er lýst

  • Nota orð sem henta fyrir þá aðferðafræði sem þið hyggist beita:

    • Eigindleg orð: Skoða, skila, uppgötva, kortleggja

    • Megindleg orð: Greina áhrif, kanna tengsl

  • Skilgreina hverjir taka þátt í rannsókninni (hvaða hópar? – nemendur, kennarar, félagsráðgjafar)

  • Skilgreina vettvang rannsóknarinnar (e. setting) (hvar? – á Akureyri, á Landspítala eða við HÍ)

  • Skilgreina hvers vegna efnið er mikilvægt

    • Fréttnæmt - mikið verið til umræðu, áhyggjur í samfélaginu

    • Lítið verið rannsakað meðal valins hóps eða á völdum vettvangi

    • Þörf á nýrri aðferðafræðilegri nálgun (t.d. notendasamráði)