29.okt - Notendasamráð í vinnu með jaðarsettum hópum

0.0(0)
Studied by 0 people
call kaiCall Kai
learnLearn
examPractice Test
spaced repetitionSpaced Repetition
heart puzzleMatch
flashcardsFlashcards
GameKnowt Play
Card Sorting

1/9

encourage image

There's no tags or description

Looks like no tags are added yet.

10 Terms

1
New cards

Málaflokkur HMFÞ

Stefna Reykjavíkurborgar er að allir íbúar hafi jöfn tækifæri til að lifa góðu og mannsæmandi lífi og enginn Reykvíkingur neyðist til að sofa úti.

ETHOS skilgreinir fjóra flokka heimilisleysis:

1) Að vera á götunni (e. roofless)

  • Fólk sem býr á víðavangi við slæmar aðstæður/skilyrði (á götunni)

  • Fólk í neyðargistingu

  • 2) Að vera húsnæðislaus (e. houseless)

  • Fólk í húsnæði fyrir heimilislausa

  • Konur í kvennaathvarfi

3) Að búa í ófullnægjandi húsnæði (e. inadequate)

  • Fólk sem fær langtímastuðning vegna heimilisleysis

  • Fólk sem er í áhættu á að missa húsnæði

4) Að búa við ótryggar húsnæðisaðstæður (e. insecure)

  • Fólk sem býr í bráðabirgðahúsnæði eða óhefðbundnu húsnæði

  • Fólk sem býr við allt of mikil þrengsli vegna fjölda íbúa í húsnæði


2
New cards

Lög og reglugerðir sem eiga við okkar starf

  • Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 

    • Reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg 

    • Reglur Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði 

  • Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

  • Lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 

  • Lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr.88/2011 

    • Reglugerð um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu nr. 1054/2010

  • Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum nr. 46/1980

  • Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 

    • Reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002


3
New cards

Hugmyndafræði HMFÞ

  • Sjálfstætt líf: Byggir á rétti einstaklinga með fötlun til að lifa sjálfstæðu lífi. Réttur fatlaðra er meðal annars að búa og taka þátt í samfélaginu án aðgreiningar.

  • Skaðaminnkun: Að draga úr heilsufars,- félags,- og efnahagslegum afleiðingum notkunar vímuefna. Einblínir ekki á bindindi heldur virðir sjálfsákvörðunarrétt einstaklinga. Dæmi um skaðaminnkun er nálaskiptiþjónusta, bílbelti o.fl. Myndband 

  • Batahugmyndafræði: Einstaklingur mikilvægasti hlekkurinn í bataferli sínu. Fagaðilar vinna að markmiðum einstaklings/notanda með það að markmiði að halda einkennum sjúkdóms í skefjum og skapa jöfn tækifæri.

  • Notendasamráð: Í allri nálgun og starfi sínu skulu starfsmenn hafa að leiðarljósi góða og þétta samvinnu við notendur með það að markmiði að koma til móts við þarfir óskir og líðan eins og frekast er kostur s.s. með markmiðum í einstaklingsbundinni þjónustu- og einstaklingsáætlun og mati á árangri.

  • Áfallamiðuð nálgun: Taka mið af áhrifum áfalla einstaklinga og miðla þekkingu um mismunandi birtingamyndir og afleiðingar mismunandi ofbelis.

  • Húsnæði fyrst (housing first): Hugmyndafræðin gengur út frá því að húsnæði sé grunnþörf og teljist til mannréttinda. Aðeins þegar þessari grunnþörf sé mætt, geti einstaklingurinn ráðið við aðrar áskoranir.

  • Þjónandi leiðsögn – í innleiðingu


4
New cards

Málaflokkur HMFÞ

  • Neyðarskýli

    • 2 fyrir karlmenn

    • 1 fyrir konur

  • Húsnæði (74)

    • Stakar íbúðir

    • Samliggjandi íbúðir

    • Tímabundin neyðarhúsnæði

    • Herbergjasambýli

    • Smáhús

    • Smáhýsi

  • Vettvangs- og ráðgjafateymi (VoR)

    • Húsnæðisteymi 

    • Vettvangsteymi


5
New cards

Hvað felst í starfi félagsráðgjafa HMFÞ?

  • Málsvarahlutverk

  • Mæta þörfum notenda á einstaklingsbundinn hátt

  • Upplýsingaflæði

  • Standa vörð um réttindi

  • Virðing

  • Jafnrétti

  • Valdefling 

  • Notendasamráð

  • Lausnamiðuð nálgun

  • Nýsköpun


6
New cards

Áskoranir tengdar málefninu

  • Vinna að því að koma á viðhorfsbreytingu í samfélaginu 

    • Andstaða við staðsetningu housing first t.a.m.

  • Fordómar í samfélagi / fréttaflutningi 

  • Að sníða þjónustu að einstaklingum sem eru jaðarsettir.

  • Félagsleg útilokun út af vímuefnanotkun

  • Lög og reglugerðir eru stundum ekki hliðholl jaðarsettum hópum.

    • Samræma þarfir notenda við gildandi lög


7
New cards

Hvað þurfum við að hafa í huga í þjónustu við jaðarsetta hópa?

  • Rafvæðing þjónustu, getur haft áhrif á okkar notendur. Mismunandi leiðir farnar til að mæta þörfum jaðarsettra hópa.

  • Upplifun þeirra af fagfólki innan velferðarþjónustu,- og/eða heilbrigðisþjónustu. 

  • Þolinmæðisvinna að byggja upp traust

  • Hvaðan koma notendur okkar og hvaða áhrif hefur það á hegðun þeirra og atferli? 

  • Raunhæfar væntingar og kröfur.

  • Óumbeðin ráð geta lent illa og virkjað varnarkerfi

  • Virða ákvörðunarrétt notenda óháð því hvort að það samræmist okkar þekkingu og skoðunum.


8
New cards

Hvaða orð notum við ekki

  • Róni

  • Utangarðsmaður 

  • Fíkill

  • Dópisti

  • Eiturlyfjafíkill / sjúklingur

  • Ógæfufólk

  • Óreglufólk

  • Glæpamaður

  • Sprautufíklar

  • Vændiskona

Þurfum að vera reiðubúin til að eiga samtal við þá sem tileinka sér þessa orðræðu og miðla þekkingu og reynslu þeirra sem standa í þeim sporum að vera kölluð eftirfarandi nöfnum

9
New cards

Orð sem við notum

  • Einstaklingur sem glímir við heimilisleysi

  • Einstaklingur sem notar vímuefni í æð

  • Einstaklingur sem á við vímuefnavanda að stríða

  • Einstaklingur sem glímir við andlegar áskoranir

  • Einstaklingur sem glímir við geðrænar áskoranir

  • Notandi

  • Jaðarsettir einstaklingar

  • Einstaklingur í kynlífsvinnu


10
New cards

Hvað höfum við lært?

  • Við þurfum að vera vakandi fyrir eigin fordómum 

  • Að vera reiðubúin að eiga samtöl við samfélagið 

    • Það er ekki til neins að pirra sig á hegðun annarra, eina sem við getum gert er að miðla og koma á viðhorfsbreytingu. 

  • Við þurfum reglulega að skoða eigin áherslur í vinnu með notendum.

    • Breyta áherslum þegar þörf er á

  • Taka leiðbeiningum frá sérfræðingum

    • Notendur eru líka sérfræðingar og mestu sérfræðingarnir í eigin lífi 

  • Að setja okkur mörk í vinnu til að tryggja gæði þjónustu 

  • Að taka ekki þátt í óæskilegri vinnumenningu

  • Að gera mistök er hluti af starfinu, við notum það til að bæta okkur í starfi.

    • Vera auðmjúk gagnvart því að vera mannleg. Að fara ekki í vörn. 

    • Biðjast afsökunar ef við höfum t.d. farið með rangt mál við notendur. Getur aukið traust. 

  • Handleiðsla getur bætt starf manns til muna

    • Við erum verkfærið, við þurfum því að huga vel að okkur. 

  • Að óska eftir endurgjöf frá samstarfsmönnum, yfirmönnum og notendum.

    • Er eitthvað sem hefði betur mátt fara? Er eitthvað sem ég get breytt ef sambærilegt atvik kemur aftur upp?