18.mars-Þátttaka barna og verklag í vinnu með börnum

0.0(0)
Studied by 0 people
call kaiCall Kai
learnLearn
examPractice Test
spaced repetitionSpaced Repetition
heart puzzleMatch
flashcardsFlashcards
GameKnowt Play
Card Sorting

1/13

encourage image

There's no tags or description

Looks like no tags are added yet.

14 Terms

1
New cards

Hvernig náum við árangri í barnaverndarvinnu?

  • Barnavernd er einn af flóknari málaflokkum sem til eru

  • Fjölskyldur upplifa oft samskiptin við barnavernd á neikvæðan hátt og barnaverndin upplifir oft erfiðleika í samskiptum við fjölskyldur

  • Mikilvægast hvernig þú kemur fram við aðra – samvinna og traust

  • Árangur í barnaverndarvinnu fer eftir því hvort tekst að vinna saman – við – fjölskyldan – annað fagfólk

  • Samvinna snýr meira að því hvernig við komum fram heldur en tækni eða aðferðir

  • Samtímis mjög mikilvægt að vinna félagsráðgjafans byggi á traustum grunni aðferða sem beitt er á viðeigandi hátt


2
New cards

SofS í stuttu máli

  • Signs of Safety er öryggismiðuð, samvinnumiðuð og valdeflandi vinnuaðferð

    • Fá börn, foreldra og aðra mikilvæga í umhverfi barnsins til samstarfs við lausn barnaverndarmálsins

  • Aðferðin kemur upphaflega frá Ástralíu

    • Hefur heillað barnaverndarstarfsfólk í Ástralíu, Norður Ameríku og Evrópu

  • Höfundar eru: Andrew Turnell og Steve Edwards

    • Þróunarverkefni 150 barnaverndarstarfsmanna í Perth

  • Meginmarkmiðið er að fara saman yfir málið og komast að samkomulagi

    • Áætlun sem inniheldur lausnir þar sem þarfir barnsins eru uppfylltar og það sé öruggt


3
New cards

SofS er „Questioning approach“

  • Sjálf miðaðar spurningar – Self – focused questions - að spyrja viðmælanda um sjálfan sig

  • Spurningar sem miða að öðrum - Other focused Questions – að spyrja viðmælanda um aðra

  • Tengslaspurningar eða hringlaga spurningar – Relationship or Circular Questions


4
New cards

Sjálfmiðaðar spurningar

  • Eru hannaðar til að hjálpa einstaklingi að íhuga eigin tilfinningar, hugsanir og viðbrögð í ákveðnum aðstæðum

  • Hjálpa við að beina athyglinni inn á við, efla sjálfskilning sem er gagnlegt í samskiptum, ákvarðanatöku og persónulega innri vinnu

  • Hvað er það sem þú elskar að gera með börnunum þínum (fyrirliggjandi styrkleikar)?

  • Þegar Jón er undir áhrifum og reiður, hvað gerir þú til þess að vernda börnin fyrir honum (fyrirliggjandi öryggi)?

  • Hverjir eru þínir helstu styrkleikar sem gætu hjálpað í þessum aðstæðum?

  • Hvernig telur þú að hegðun þín gæti haft áhrif á aðra í þessum aðstæðum?


5
New cards

Spurningar sem miða að öðrum

  • Þessar spurningar eru hannaðar til að hjálpa fólki að skilja tilfinningar, hugsanir og viðhorf annarra

  • Hjálpa við að dýpka skilning og stuðla að betri samskiptum með því að beina athyglinni að öðrum og þeirra upplifun

    • Hvað er það sem Jón elskar að gera með börnunum (fyrirliggjandi styrkleiki)?

    • Þegar Jón er drukkinn og reiður, hvað gerir hann til þess að börnin verði ekki hrædd og/eða verði ekki fyrir skaða (fyrirliggjandi öryggi)?

    • Hvaða stuðning telur þú þig þurfa til að hjálpa þér að takast á við þetta ?

    • Er eitthvað sem ég gæti gert öðruvísi til að hjálpa þér betur?


6
New cards

Tengslaspurningar

  • Notaðar til að skapa betri skilning á tengslum milli aðila

  • Beina athyglinni að því hvernig hegðun, hugsanir eða tilfinningar eins einstaklings hafa áhrif á aðra og hjálpa þannig við að breyta sjónarhorni aðila

    • Ef við myndum spyrja dóttur þína hvað henni líki best í fari þínu ? Eða í fari pabba síns (fyrirliggjandi styrkleikar) ?

    • Hvað myndi bróðir Jóns segja að hann gerði til að stjórna drykkju og reiðinni svo að þú og börnin verðið ekki hrædd eða fyrir verðið fyrir skaða (fyrirliggjandi öryggi)?

    • Hvernig myndi fjölskylda þín lýsa hlutverki þínu í þessum aðstæðum?

    • Hvað myndi Jón segja að hann upplifi í þessum aðstæðum?


7
New cards

Húsin þrjú – notað í samvinnu við barnið!

Hjálpa til við að fá svör við þremur spurningum sem SofS notar við mat á stöðu barnsins.

  • Hverju hefur þú áhyggjur af ?

  • Hvað er að ganga vel?

  • Hvernig myndir þú vilja hafa hlutina?


8
New cards

Orð og myndir - notað í samvinnu við foreldra!

Þessi aðferðafræði er notuð með foreldrum / fjölskyldunni og er kynnt fyrir barninu í nærveru þeirra og fagfólks

Til að útskýra fyrir barninu fullorðins og flókna hluti

Tvær meginástæður fyrir notkun:

  • Útskýra áhyggjur: Hvað gerðist, af hverju er barnavernd í málinu og hvað mun gerast næst

  • Kynna áætlun: Þegar áætlun hefur verið gerð til að tryggja öryggi barnsins – barnamiðað öryggisplan


9
New cards

Ávinningur:

  • Hjálpar foreldrum að segja börnunum sínum frá

    • Að þeim þyki vænt um börnin sín og jákvæða hluti

    • Hvað var það vonda sem gerðist

  • Börn fá skýra mynd og útskýringu af áhyggjum innan fjölskyldunnar

    • Dregur úr leynd, skömm og ásökunum

  • Hjálpar fjölskyldu og tengslaneti að ræða erfið mál á öruggari og barnvænni hátt

  • Börn geta farið til baka í útskýringarnar hvenær sem er

  • Geta þannig fengið dýpri skilning á ákveðnum atburði eða af hverju staðan er eins og hún er í fjölskyldunni


10
New cards

Hvernig byrjum við:

  • Skýrðu mikilvægi verkefnisins fyrir öllum sem taka þátt

    • Sammælist um hverjir taka þátt og hverjir geta samþykkt lokadrögin

  • Safnaðu upplýsingum um áhyggjur: hvað gerðist, hvar, hverjir voru til staðar og hvað var sagt

  • Notaðu orð sem fjölskyldan þekkir við vinnuna

  • Lýsa bæði vandamálum og jákvæðum þáttum

    • Leggja mesta áherslu á miðjudálkinn – hvað gengur vel

    • Aldrei teikna ofbeldið á myndina


11
New cards

Hvernig ljúkum við:

  • Drög: Byrjaðu á einfaldri frásögn sem byggir á upplýsingum frá öllum þátttakendum

  • Deildu þessu með foreldrum til að fá samþykki áður en myndum eru bætt við

  • Foreldrar og aðrir viðeigandi aðilar þurfa formlega að samþykkja efnið áður en það er kynnt fyrir barninu

  • Kynning: Foreldrar deila lokaafurðinni með barninu og stuðningsneti sínu, með stuðningi og undir handleiðslu fagfólks

  • Gætið þess að ræða við barnið til að tryggja skilning þess á innihaldinu


12
New cards

Viðbrögð eru alltaf ákall

  • Verið vakandi fyrir því sem barnið er að reyna að segja

  • Munið: Ákall barnsins birtist ekki alltaf í góðri hegðun

  • Að hugsa um áköll er að „skyggnast bak við“ viðbrögð og hegðun barnsins


13
New cards

Dæmi um áköll barna

  • Ósk um athygli, umhyggju eða nærveru

  • Að eitthvað sé erfitt og að þau þurfi hjálp eða stuðning

  • Staðfestingu á því að tilfinningar barnsins séu eðlilegar

  • Að þið eigið ekki að rífast eða vera í fýlu

  • Að þið takið ábyrgð á því sem á sér stað

  • Ósk um að þið verjið meiri tíma með barninu


14
New cards

Hvað er SES NXT?

  • SES NXT – stafrænt úrræði:

  • Þróað fyrir börn sem verða fyrir áhrifum af sambandslitum foreldra

  • Virkar á PC, Mac og snjalltæki

  • SES NXT efnið:

  • Inniheldur myndbönd og gagnvirkar æfingar

  • Áhorfsnám (observational learning):

  • Kjarninn í SES NXT úrræðinu er að spegla sig í öðrum börnum

  • Börnin horfa og læra af öðrum börnum sem hafa upplifað sambærilegt

  • Áhersla og meginmarkmið:

  • Þekkja dæmigerðar tilfinningar og viðbrögð

  • Kunna aðferðir sem grípa má til þegar erfiðar hugsanir og tilfinningar gera vart við sig

  • Læra að segja hvað þau vilja við fullorðið fólk

  • Að hefja samtal við fullorðinn sem þau treysta