Ökuskóli 1, lota 3 verkefni

0.0(0)
Studied by 0 people
call kaiCall Kai
learnLearn
examPractice Test
spaced repetitionSpaced Repetition
heart puzzleMatch
flashcardsFlashcards
GameKnowt Play
Card Sorting

1/27

flashcard set

Earn XP

Description and Tags

Æfing

28 Terms

1
New cards

Rétt eða rangt? Bannað er að nota nagladekk frá 15. apríl til og með 31. október.

Rétt. (Bannað er að nota nagladekk frá 15. apríl til og með 31. október. Það fer þó eftir veðri og færð.)

2
New cards

Rétt eða rangt? Ef of lítill loftþrýstingur er í hjólbörðum geta þau slitnað óeðlilega á köntunum.

Rétt. (Dekk geta misslitnað ef of lítill eða of mikill loftþrýstingur er í þeim.)

3
New cards

Rétt eða rangt? Ummerki eftir utanvegakstur geta verið marga áratugi að hverfa.

Rétt. (Á hálendinu geta för eftir utanvegaakstur verið marga áratugi að gróa upp.)

4
New cards

Rétt eða rangt? Hámarkshraði í húsagötum er oft 60 km/klst.

Rangt. (Í mörgum húsagötum er hámarkshraði 30 km/klst til þess að auka öryggi gangandi fólks.)

5
New cards

Rétt eða rangt? Alltaf þarf að gefa stefnuljós þegar ekið er út úr hringtorgi.

Rétt. (Skylda er að gefa það þegar ekið er út úr því.)

6
New cards

Rétt eða rangt? Alltaf þarf að gefa stefnuljós þegar ekið er inn í hringtorg.

Rangt. (Ekki þarf að gefa stefnuljós inn í hringtorgi.)

7
New cards

Rétt eða rangt? Um það bil 90% af þeim upplýsingum sem við fáum úr umferðinni er út frá sjóninni.

Rétt. (Oft er talað um að 90% upplýsingar sem við fáum í akstri sé í gegnum sjónina.)

8
New cards

Rétt eða rangt? “R” á sjálfskiptum bíl þýðir að bíllinn er í hlutlausum gír.

Rangt. (“R” stendur fyrir enska orðið reverse og er bakkgír.)

9
New cards

Rétt eða rangt? Skylt er að hafa stöðuljós framan á bíl.

Rétt. (Það eiga að vera stöðuljós framan og aftan á bílum.)

10
New cards

Rétt eða rangt? Ekki er skylda að hafa númerljós aftan á bílum.

Rangt. (Það er skylda að hafa númersljós aftan á bílum.)

11
New cards

Rétt eða rangt? Ef fólk er staðið að utanvegaakstri liggja við því háar fjársektir.

Rétt. (Ökumenn geta fengið háar fjársektir ef þeir spilla landinu með utanvegaakstri. Þar sem að jafnaði er kalt er í veðri geta skemmdir eftir utanvegaakstur verið marga áratugi að hverfa.)

12
New cards

Rétt eða rangt? Alltaf má aka utan vega uppi á hálendi Íslands.

Rangt. (Eingöngu má aka utan vega ef engin hætta er á skemmdum á jarðvegi, t.d. á veturna þegar að snjor liggur yfir landinu. Ökumenn geta fengið háar fjársektir ef þeir spilla landinu með utanvegaakstri. Þar sem að jafnaði er kalt er í veðri geta skemmdir eftir utanvegaakstur verið marga áratugi að hverfa.

13
New cards

Rétt eða rangt? Lágmarksmynsturdýpt hjólbarða (dekkja) á veturna má ekki vera minna en 3,0 millímetrar.

Rétt. (Lágmarksmynsturdýpt hjólbarða má ekki fara undir 3,0 mm á veturna. 1. nóvember til og með 14. apríl.

14
New cards

Rétt eða rangt? Lágmarksmynsturdýpt hjólbarða (dekkja) á sumrin má ekki vera minna en 1,6 millímetrar.

Rétt. (Lágmarksmynsturdýpt hjólbarða má ekki fara undir 1,6 mm á sumrin.)

15
New cards

Rétt eða rangt? Við akstur í þéttbýli þarf ekki að hafa kveikt á aðalljósum bílsins.

Rangt. (Aðalljós bílsins eiga alltaf að vera kveikt í almennri umferð. Ekki má nota þokuljós innanbæjar og ekki má aka eingöngu með stöðuljós bílsins kveikt.)

16
New cards

Rétt eða rangt? Við akstur í þéttbýli er alveg nóg að hafa bara kveikt á stöðuljósum bílsins.

Rangt. (Aðalljós bílsins eiga alltaf að vera kveikt í almennri umferð. Ekki má nota þokuljós innanbæjar og ekki má aka eingöngu með stöðuljós bílsins kveikt.)

17
New cards

Rétt eða rangt? Rangur loftþrýstingur í hjólbörðum hefur áhrif á aksturseiginleika bílsins.

Rétt. (Rangur loftþrýstingur í hjólbörðum getur aukið eldsneytiseyðslu, haft áhrif á aksturseiginleika, t.d. þannig að bíllinn fer að leita í aðra áttina og hefur þannig áhrif á öryggi þitt og annarra vegfarenda sem í kringum þau eru.)

18
New cards

Rétt eða rangt? Það má nota bílflautuna til að reka á eftir fólki sem er að ganga eftir gangbraut.

Rangt. (Bílflautuna má eingöngu nota til að vara við eða afstýra hættu.)

19
New cards

Rétt eða rangt? Nota skal stefnuljós þegar ekið er aftur inn á veg ef bíllinn hefur verið stöðvaður við vegbrún.

Rétt. (Ökumenn eiga að gefa stefnuljós þegar bíl er beygt (t.d. út úr hringtorgi), þegar skipt er um akrein, snúið við og eins þegar ekið er að og frá vegbrún.)

20
New cards

Rétt eða rangt? Aftan á bíl eiga meðal annars að vera númersljós og stöðuljós (afturljós).

Rétt. (Stöðuljós: Rauð ljós sem loga alltaf þegar bíllinn er í gangi. Bremsuljós: sem kvikna þegar stigið er á bremsupedalann eða handbremsan er sett á. Bakkljós: Hvítt ljós sem kviknar þegar bílnum er bakkað. Númersljós: Lýsa upp númeraplötuna. Stefnuljós. Endurskin: sem varar þá aðra við ef að bíllinn bilar t.d. og verður alveg rafmagnslaus. Þokuljós: sterkt, rautt ljós sem kveikja skal utan þéttbýlis ef skyggni er slæmt, t.d. í snjókomu eða þoku. Það minnkar líkur á því að ekið sé aftan á okkar bíl.)

21
New cards

Rétt eða rangt? Framan á bíl er skylda að hafa þokuljós (kastara)

Rangt. (Þokuljós (kastarar) að framan eru aukabæunaður á bílum. Ekki er skylda að hafa slík ljós.)

22
New cards

Rétt eða rangt? Umferðarmerkið táknar að ekið sé á þeim hluta götunnar sem örin vísar á.

Rétt eða rangt? Umferðarmerkið táknar að ekið sé á þeim hluta götunnar sem örin vísar á.

Rétt. (Merkið beinir ökumönnum á þann hluta götunnar sem þeir skulu nota.)

23
New cards

Rétt eða rangt? Þetta umferðarmerki varar við því að hringtorg sé framundan á veginum.

Rétt eða rangt? Þetta umferðarmerki varar við því að hringtorg sé framundan á veginum.

Rangt. (Merki sem þetta er notað við hringtorg og sýna örvarnar þá átt sem ekið skal í. Ef vara á við að hringtorg sé framundan, þá eru sett upp þríhyrnd viðvörunarmerki áður en komið er ða hringtorginu.)

24
New cards

Rétt eða rangt? Þetta merki er notað við stíga sem gangandi og hjólandi skulu nota, en ekki aðrir.

Rétt eða rangt? Þetta merki er notað við stíga sem gangandi og hjólandi skulu nota, en ekki aðrir.

Rétt. (Merki þetta má nota við stíga sem gangandi vegfarendur og hjólreiðamenn skulu nota en ekki aðrir.)

25
New cards

Rétt eða rangt? Þetta umferðarmerki er oft notað við blindhæðir.

Rétt eða rangt? Þetta umferðarmerki er oft notað við blindhæðir.

Rétt. (Þetta tiltekna boðmerki er oft notað á blindhæðum til að beina ökutækjum á réttan hluta vegarins.)

26
New cards

Rétt eða rangt? Um það bil 70% af þeim upplýsingum sem við fáum úr umferðinni er út frá sjóninni.

Rangt. (Rannóknir hafa sýnt fram á að um það bil 90% af þeim upplýsingum sem við fáum úr umferðinni er út frá sjóninni.)

27
New cards

Rétt eða rangt? Merkið táknar að matsölustaður sé framundan.

Rétt eða rangt? Merkið táknar að matsölustaður sé framundan.

Rangt. (Merkið táknar það að útskot sé á veginum, þar sem hægt er að mæta öðrum ökutækjum og/eða að hleypa ökutæki fram úr okkur. Merkið má sjá víða í gömlum, einbreiðum jarðgöngum sem eru þá ekki með nema eina akrein.)

28
New cards

Rétt eða rangt? Merkið táknar að ekið sé inn í þéttbýli.

Rétt eða rangt? Merkið táknar að ekið sé inn í þéttbýli.

Rangt. (Merkið táknar vistgötu. Þar sem vistgötur eru, eiga gangandi forgang gagnvart umferð ökutækja. Þar eigum við að aka hægt og alls ekki hraðar en 15 km/klst.)